Hollt & Gott hefur hefur markað sér sérstöðu á markaðnum með vörur fyrir salatbari. Hollt & gott framleiðir fyrir verslanir, veitingahús, mötuneyti og stóreldhús.Við bjóðum upp á afar fjölbreytt úrval af salatbarsvörum; pastasalöt, kjúkingaréttir, salöt og í raun allt sem einn salatbar þarf. Nánast allir salatbarir í verslunum landsins eru með vörur frá Hollt & Gott sem eru allar tilbúnar til neyslu eða notkunar með öðrum réttum. Þar með sparast vinnukostnaður, vinnupláss, afskurður að ógleymdu geymslu- og kælaplássi.