Brauðsalötin frá Hollt & Gott hafa kitlað bragðlauka landsmanna frá því árið 1995. Reynsla okkar á því sviði hefur gert okkur fært að þróa uppskriftir sem ættu engan að svíkja. Undir merkjum Ferskt & Gott fást salötin í neytendapakkningum fyrir smásölumarkað og í stærri einingum fyrir, til að mynda, veislueldhús og mötuneyti. Brauðsalötin frá Hollt & Gott gera veisluna ógleymanlega.