Kostir grænmetis- og ávaxtasafa fyrir heilsuna eru fjölmargir og ótvíræðir. Grænmetissafar eru sneisafullir af næringarefnum og góð leið til þess að auka inntöku okkar á grænmeti og ávöxtum. Þeir eru líka hentugir til að auka grænmetisneyslu, ekki síst fyrir börn og unglinga. Ferskir safar hafa hreinsandi og nærandi áhrif og það er afar einfalt að útbúa holla heilsudrykki úr fersku grænmeti og ávöxtum.
1 lúka = ~30 gr
Hreinn grænn safi
10 lúkur af spínati (eða klettasalati)
4-5 sellerístilkar
2-3 græn epli
1 lime
2 cm engiferrót
Allt sett í gegnum safapressu - gott að drekka með klaka útí
Það eru til ótal leiðir til þess að gera gómsætt salat. Hérna bjóðum við upp á nokkrar hugmyndir.....
Veislusalat
Blandið saman í skál hvítlauk, sojasósu, balsamikediki og olíu, og kryddið með salti og pipar. Hellið yfir tómata og laukinn og hrærið vel saman. Setjið veislusalatið í skál og blandið tómatasalsanu út í og berið strax fram.
Salat með rauðu greipaldin og geitaosti
Setjið salatið í skál og bætið ólífum, rauðlauk og grapekjöti. Hrærið saman olíu og ediki og kryddið með salti og pipar og hellið yfir salatið. Myljið ostin yfir og berið fram.
Volgt spínatsalat
Steikið sykurbaunirnar upp úr smjöri í 1 mín og kryddið með salti og pipar. Bætið sýrópinu út í og látið standa í nokkrar mínútur. Blandið saman spínati og mangó í skál og hellið baununum út í. Stráið furuhnetum yfir.
Sveppasalat
Blandið saman timjan, hvítlauk, hunangi og sítrónusafa. Steikið sveppina upp úr smjörinu á pönnu og kryddið með salti og pipar. Bætið blönduni saman við og steikið í 1-2 mínútur. Setjið klettasalat í skál og blandið sveppunum saman við. Berið fram strax.
Kjúklingasalat með rauðu greipaldin
Hrærið saman vorlauki, ediki, olíu og sýrðum rjóma. Bætið kjúklingi saman við. Setjið salatið í skál og notið beittan hníf til þess að skera kjötið úr greipaldininu og setjið út í salatið, ásamt kjúklingnum og valhnetum. Kryddi með salti og pipar.
Sumarlegt kjúklingasalat
Skerið jarðaberin í fernt og blandið saman við salatið, rauðlaukinn, paprikuna og kjúklinginn. Steikið maísinn upp úr olíu á pönnu og kryddið með salti og pipar. Hellið yfir salatið og blandið saman ásamt sítrónusafa og smá olíu.
Klettasalat með peru og fennel
Hunangs sinneps dressing
Skerið fennelið í mjög þunnar sneiðar og setjið í skál með köldu vatni í 15-20 min. Blandið öllu saman sem á að fara í dressinguna í ílát með loki og hristið vel saman. Sigtið fennelið og setjið í skál. Skerið peruna í fernt og kjarnhreinsið, skerið í þunnar sneiðar og bætið útí skálina. Blandið salatinu saman og hellið dressingunni yfir og blandið varlega saman.
Mandarínu og rauðlaukssalat með granataeplum
Takið hýðið utan af mandarínunum og skerið í þunnar sneiðar. Skerið rauðlaukinn í þunna strimla. Raðið mandarínunum á fat og stráið rauðlauknum, klettasalatinu og fræunum úr granataeplunum yfir. Setjið sítrónusafa, hunang og olíu í skál og þeytið vel saman. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið dressingunni yfir. Skreytið með ferskum kryddjurtum. Hentar vel með fiski eða kjöti. Einnig gott að mylja fetaost yfir.
Steikt spergilkál með spínati og parmesan
Skerið spergilkálið niður í munnbita, notið einnig stilkinn. Steikið á pönnu upp úr smjöri og olíu og kryddið með salti og nýmöluðum pipar. Saxið hvítlaukinn og bætið á pönnuna þegar spergilkálið hefur tekið lit og steikið í 2 mín til viðbótar. Setjið spínatið í skál og hellið spergilkálinu yfir. Blandið saman og stráið parmesan osti yfir og berið fram.
Litríkt hrásalat með valhnetum
Dressing
Skrælið og skerið rótargrænmeti í þunna strimla. Einfaldast er að nota grænmetisskera en einnig má nota gróft rifjárn. Þeytið saman sítrónusafa, hunangi, jómfrúarolíu, hnetuolíu og kryddið með salt og pipar. Bætið steinselju og valhnetum út í, blandið saman við grænmetið og berið fram.
Tómatsalat með mozzarella
Setjið klettasalat á fat og skerið tómata í grófa báta eða bita og leggið ofan á. Skerið rauðlauk í strimla og stráið yfir. Blandið saman jómfrúarolíu og balsamic ediki og pressið hvítlauk saman við. Dreifið dressingunni yfir tómatana og kryddið með salti og pipar. Skerið basiliku gróf og rífið niður mozzarella ostinn, stráið yfir og berið fram. Himneskt með góðu steinbökuðu brauði.
Gulrótar- og appelsínusalat með chili
Skrælið gulrætur og skerið í þunna strimla eða rífið með rifjárni. Skerið hýðið af appelsínum (inn að kjöti) og sneiðið í þunnar sneiðar - má skipta sneiðum í tvennt. Blandið saman gulrótum og appelsínum. Setjið sítrónusafa, ólífuolíu, chili, salt og kryddjurtir í skál og hrærið saman. Bætið út í salatið og blandið vel saman.
Sumarsalat
Öllu blandað saman og látið standa í nokkrar mínútur áður en borið er fram.