Hinir geysi vinsælu grill- og ofnbakkar frá Hollt & Gott gera þér kleift að bjóða upp á hollt og ferskt meðlæti með lítilli fyrirhöfn. Réttirnir koma í handhægum bökkum sem hægt er að skella beint á grillið eða í ofninn. Veltið nokkrum sinnum við þangað til rétturinn er tilbúinn. Ekki spillir smá klípa af smjöri eða sletta af góðri olíu.